10.6.2007 | 23:41
KR-ingar, KR-ingar hverjir eru bestir?
Skagamenn, Skagamenn það vita það nú flestir... Það er alltaf gaman að fara upp á Skaga, en það var sérstaklega gaman í kvöld...
Kv. Hannibal
KR enn án sigurs eftir 3:1 tap gegn ÍA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.6.2007 | 11:33
Leikur bara nafna
Sean Connery er sá maður sem leikur mig best, þó ég segji sjálfur frá. Hringi í þig á morgunn Sean, skulda þér 4 símtöl...
Kv. Hannibal
Connery verður ekki með í fjórðu myndinni um Indiana Jones | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.6.2007 | 22:27
Miðað við höfðatölu
Íslendingar fá á sig flest mörk miðað við höfðatölu og skora fæst. En það er allt í lagi því við erum svo fá. Áfram Ísland, jafn vel þó við getum ekki neitt! Ja þó við eigum örugglega mark fengið á sig ársins, það er árangur og gladdi manns hjarta.
Kv. Hannibal
Íslendingar sáu aldrei til sólar í fimm marka tapleik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.6.2007 | 12:45
Árangur áfram, ekkert stopp
Það sagði Framsóknarflokkurinn, náði 10% árangri. En árangri þó. Það sagði enginn hvernig árangri. Mig mynnir að Eyjólfur hafi sagt að hann ætlaði að ná árangri, en sagði hann hvernig árangri. Kannski er bara árangur áfram hjá honum og ekkert stop?
Kv. Hannibal
Eyjólfur gerir fimm breytingar fyrir Svíaleikinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.6.2007 | 12:56
Lýst er eftir Íslendingi
Sökum slæmrar stöðu íslenska karla-landsliðsins á fótboltavellinum er lýst eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka á einhver hundruð þúsund króna sekt fyrir að hlaupa inn á völlinn og reyna að kíla dómara í viðkomandi leik. Þessir einstaklingar fá þá þjálfun sem til þarf, eins og hvernig á að komast inn á völlinn, hvernig búning skal vera í o.s.frv. og fer sú þjálfun fram á Parken í Danmörku. Skal þetta gert gegn okkur sterkari þjóðum, sem fer ört fjölgandi, til að forðast niðurlagingu. Viðurlög við því að leikurinn sé flautaður af er 0-3 tap en við erum nú þegar búnir að tapa 4-0 fyrir Lettum.
Kv. Hannibal
Dönsk fótboltabulla látin laus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.6.2007 | 08:49
Áfengislausir veitinga- og skemmtistaðir
Hugsiði ykkur, 6 ölvaðir undir stýri eftir að hafa setið að svamli á einhverri knæpunni. Nú segi ég stopp. Ölvaðir ökumenn eru stór hættulegir og hugsiði um alla leigbílstjórana sem vinna á götum borgarinnar. Stór áhættuhópur þegar kemur að dauðsföllum af völdum óbeins ölvunaraksturs. Legg ég til og mæli um að öll veitinga- og skemmtannahús verði gerð áfengislaus.
Kv. Hannibal
Engin útköll vegna breytinga á lögum um tóbaksvarnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2007 | 14:13
Action
... sagði James Gray og Joaquin Phoenix glotti til Evu Mendes og hvíslaði "klappaðu nú hvolpnum". Eva staupaði sig. Debbie did Dallas, en Eva did Phoenix.
Kv. Hannibal
Þarf vodka fyrir kynlífssenur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.5.2007 | 21:45
Árangur áfram, ekkert stopp
Vona bara að það fari eins fyrir ManUtd og Framsóknarflokknum... Hvað eru þeir þarna í Liverpool að spá í að missa alltaf af stóru fiskunum? Ár eftir ár... við tökum til á næsta ári, búinn að fá leið á því orðatiltæki.
Kv. Hannibal
Anderson og Nani á leið til Manchester United | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2007 | 15:55
Þú verður að vera rólegur
Þú æsir upp öll hin sagði skáldið og það sama var sagt við Lewis. Þetta er ekki nógu gott en samt skárra en hjá Ferrari um árið, þótt þetta sé sami grauturinn, bara í annari skál.
Kv. Hannibal
McLaren slapp með skrekkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2007 | 12:50
Kaldastir
Staðan í draumadeildinni talar sínu máli. Þar eru menn ýmist heitir eða kaldi, allt eftir því hvernig þeir standa sig. Kaldastur m -6 stig er hafsent þeirra KR-inga, Gunnlaugur Jónsson, og fast á hæla honum er hafsent Fram-ara, Reynir Leósson, með -5 stig.
Ég hef nú bara eitt að segja við þessa fyrrum Íslands- og Bikarmeistar ofan af Akranesi. Grasið er grænna hinumeginn við Faxaflóann. Verið velkomnir heim.
Kv. Hannibal
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)