Lýst er eftir Íslendingi

Sökum slæmrar stöðu íslenska karla-landsliðsins á fótboltavellinum er lýst eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að taka á einhver hundruð þúsund króna sekt fyrir að hlaupa inn á völlinn og reyna að kíla dómara í viðkomandi leik.  Þessir einstaklingar fá þá þjálfun sem til þarf, eins og hvernig á að komast inn á völlinn, hvernig búning skal vera í o.s.frv. og fer sú þjálfun fram á Parken í Danmörku.  Skal þetta gert gegn okkur sterkari þjóðum, sem fer ört fjölgandi, til að forðast niðurlagingu.  Viðurlög við því að leikurinn sé flautaður af er 0-3 tap en við erum nú þegar búnir að tapa 4-0 fyrir Lettum.

Kv. Hannibal


mbl.is Dönsk fótboltabulla látin laus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ha ha það væri sniðugt

en hvað fær maður borgað fyrir að taka þátt í svona athæfi?

kv. Getum við ekki bara öll lagt smá í púkk fyrir sektinni?

Eygló Hlín (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 13:04

2 Smámynd: Hannibal

Það er pottþétt að maður kemur fjárhagslega út í tapi, en það er ekki alveg gefið að Svíjum yrði refsað ef við værum með brögð í tafli í Svíþjóð...

En ef þetta verður dómsmál skal hafa í huga að dómurinn verðir fordæmisgefandi svo ég held hann verði þungur og strák greyinu í óhag.  Það sem sagt borgar sig ekki að drekka 10-15 bjóra og drepast ekki...

Hannibal, 4.6.2007 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband